Spekingar spjalla um framtíðarbaráttu um slagið!


Enn og aftur eru sérfræðilæknar, hjúkrunarfræðingar o.fl. af öllu landinu og einning félagar í HEILAHEILL, að fjarfunda í tengslaneti SAP-E, (Stroke Action Plan for Europe) hér á landi, þar er kveðið á um í samkomulagi er samtökin  ESO (European Stroke Association) og SAFE (Stroke Alliance For Europe) gerðu með sér í Helsinki, Finnlandi, 2018.  Á fundinum var hvatt til tæknilegra nýjunga í bráðameðferð heilablóðfalls og nákvæmari meðferð þar sem gert er ráð fyrir að hvert land fyrir sig innan samtakanna vinni að áætlun er varðar slagið skv. sérstakri greiningu.  Flutti Björn Logi Þórarinsson, lyf- og taugasérfræðingur á LSH afar fróðlegt erindi um framtíðarmöguleika heilbrigðiskerfisins hér á landi með nýrri tækni og lagði áherslu á landsbyggðin væri með í þeirri þróun.  Ræddi hann þá möguleika að íslenska heilbrigðiskerfið gæti tekið upp samskonar tækni og nýjungar og Norðurlandaþjóðirnar, sjúklingum til heilla, – sem væru þegar byrjaðar að nota þessa tækni við að hraða greiningar á slagi.

 

 

 

 

 

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur