Aðalfundargerð 2011

Aðalfundur Heilaheilla haldinn í Hringsal LSH og með fjarfundabúnaði á Sjúkrahúsinu  á Akureyri  26. Febrúar 2011 kl. 13.00

Formaður Þórir Steingrímsson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna
Ellert Skúlason var tilnefndur fundarstjóri og Þórólfur Árnason fundarritari og var það samþykkt.

Gengið til dagskrár aðalfundar.
1. Skýrsla stjórnar.
Formaður flutti skýrslu stjórnar (aðgengileg á netinu)
2. Framlagðir endurskoðaðir reikningar til samþykktar.
Í forföllum gjaldkera gerði formaður grein fyrir reikningum Heilaheilla og Kristín Stefánsdóttir fyrir reikningum Faðms. Reikningarnir voru  samþykktir samhljóða.
3. Lagabreytingar:
Lögð fram tillaga um breytingar á greinum 5 og 6.
5. Grein hljóði svo:
Skipun stjórnar.
Stjórn félagsins skal skipuð sex félagsmönnum: formanni, varaformanni, ritara og gjaldkera, auk tveggja meðstjórnenda.  Stjórn félagsins skal kosin til þriggja ára í senn, formaður sérstaklega, en varaformaður, ritari, Stjórn félagsins gjaldkeri, meðstjórnendur saman og tveir varamenn sér.  Varaformaður gegnir formennsku í forföllum formanns. Varamenn taka þátt í stjórnarfundum.
6. Grein hljóði svo:
Starf stjórnar.
Stjórnarfundir eru lögmætir, ef meirihluti er mættur á fund.  Varaformaður gegnir formennsku í forföllum formanns og  gjaldkeri hefur á hendi ábyrgð og eftirlit með fjárreiðum félagsins.
Tillagan samþykkt.

4.  Kosning stjórnar.
                  Formaður var kjörinn:           Þórir Steingrímsson
Í stjórn voru kosin:                Sigurður Hjalti Sigurðsson
Edda Þórarinsdóttir
Ingólfur Margeirsson
Albert Páll Sigurðsson
Þórólfur Árnason
Í varastjórn:                         Sigríður Þormar
Ólöf Þorsteinsdóttir
5.  Kosning skoðunarmanna:           Ellert Skúlason
Bergur Jónsson
6.  Fjárhagsáætlun.
Í forföllum gjaldkera gerði formaður grein fyrir fjárhagsáætlun í mjög stuttu máli.  Málið afgreitt.
7. Kosningar í  ráð og nefndir:
Fjáröflunarnefnd   Pétur Rafnsson
Framvarðasveit     Edda Þórarinsdóttir
Kaffihópur             Gunnhildur Þorsteinsdóttir
Bergur Jónsson
Hrafnkell Kárason
Dröfn Jónsdóttir
Hörður Brandsson
Elín Guðnadóttir
Ellert Skúlason
Þingnefnd              Sævar Guðjónsson
Magnhildur Gísladóttir
Aðstandendur       Þórólfur Árnason
Faðmur                  Kristín Stefánsdóttir
Glitnissjóður          Guðrún Jónsdóttir
Ferðahópur            Dagmar Bjartmarz
Norðurdeild            Páll Árdal / Helga Sigfúsdóttir
Go Red                  Sigríður Þormar.

8. Önnur mál.  Ingólfur Margeirs ræddi málin vítt og breitt, m.a. hugmynd um framkvæmdastjóra.

Fleira ekki gert og fundi slitið.
Þórólfur Árnason fundarritari.

Heilaheill notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun notenda vefsins svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á heilaheill.is
  • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Hafna öllum vafrakökum
Samþykkja allar vafrakökur